Efni af vef

Guðbjörg Magnúsdóttir söngkona

Velkomin á Söngur.is sem er í eigu Guðbjargar Magnúsdóttur söngkonu. Tek að mér söng við öll tækifæri, þar má nefna brúðkaup, afmæli, árshátíðir og annað þess háttar, ávalt vandaður gæða flutningur. Í gegnum tíðina hef ég starfað með frábærum undirleikurum eins...

Lesa Meira

Söngdæmi

Söngdæmi:

In My Daughters Eyes

Hann elskar líka þig

Inseberable

Foolish Games

Þakklæti

Tvö nýjustu lögin eru beint úr stúdíóinu hans Óskars Einars, In my daughter’s eyes er lag sem ég vildi syngja til dóttur minnar, Birtu Óskar og hitt er eitt flottasta gospellag sem ég hef heyrt og heitir Hann elskar líka þig. Lögin eru það sem kalla má “one take”, þ.e.a.s. söngur og píanó er tekið upp í fyrstu tilraun og strengjum bæt við þegar Óskar hljóðblandaði.

Hérna má líka finna Foolish games með Jewel, kannski ekki brúðkaupsvænt lag en eitt af mínum uppáhalds svona í daglegu lífi. Síðan er þarna Insebarable með Natalie Cole, það lag er að mínu mati geysilega fallegt og vel heima við allar rómatískar aðstæður þar á meðal brúðkaup.

Foolish games, Insebarable og I finally found someone er tekin upp í fína stúdíóinu hans Óskars Einarssonar, tvö síðar nefndu eru með undirspili Agnars Más píanóleikara og Foolish games undirspilið fann ég á netinu.

Einnig má finna hérna útgáfu af Þakklæti með (Trúbrot) sem við hjónin völdum m.a. til að láta syngja í okkar brúðkaupi. Svona til að bæta úr skorti á sýnishornum fór ég til Kalla Olgeirs og við tókum þetta lag upp, það lag líka búið að vera lengst inni og því mest sótt.

Öllum fyrirspurnum svarað án skuldbindinga. Best er að senda mér tölvupóst g [hja] songur.is eða hringja í GSM-númer mitt, 824 2898 eða 568 2808.

“Elskaðu mig mest þegar ég á það síst skilið
því þá þarf ég mest á ást þinni að halda.”
höf. óþekktur