Primadonnur
Frábær söngsýning með mörgum af bestu lögum ABBA
Okkur vinkonunumhefur um langt skeið langað til að setja upp söngskemmtun sem ferðast mætti með og setja upp við hin ýmsu tækifæri og nú er það komið, ABBA-söngsýninig með flestum að bestu lögum hljómsveitarinnar þar sem fara saman söngur, gleði og mikil skemmtun! Frábært sýning fyrir þá sem líkaði við Mamma Mía kvikmyndina.
Við erum allar með viðamikla reynslu í söng og höfum unnið saman og einnig sér við hin ýmsu tækifæri. Allar höfum við notið þeirrar virðingar að vera valdar sem fulltrúar Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Euróvisjón, árin 1999 og 2000.
Einnig höfum við unnið við fjölmörg tækifæri og sýningar undir stjórn Gunnars Þórðarsonar og má þar helst nefna hina frábæru og eftirminnilegu ABBA-sýningu sem gekk fyrir fullu húsi á í þrjú ár á Broadway.
Vegna reynslu okkar af því að veita fólki ógleymanlega skemmtun höfum við ákveðið að bjóða ykkur upp á rjómann af vinsælustu sýningu sem sett hefur verið upp á stærsta skemmtistað landsins, ABBA-sýningunni.
Smelltu hér til að sækja tóndæmi
Prímadonnurnar..
Hulda, Rúna og Guðbjörg
gsm 8242898 - Tölvupóstur: gudbjorg hjá songur.is

