Efni af vef

Guðbjörg Magnúsdóttir söngkona

Velkomin á Söngur.is sem er í eigu Guðbjargar Magnúsdóttur söngkonu. Tek að mér söng við öll tækifæri, þar má nefna brúðkaup, afmæli, árshátíðir og annað þess háttar, ávalt vandaður gæða flutningur. Í gegnum tíðina hef ég starfað með frábærum undirleikurum eins...

Lesa Meira

Ferillinn

Söngferill Guðbjargar í stuttu máli
Eftir Kristján Má Hauksson

Segja má að söngferill Guðbjargar hafi byrjað eftir að hún fluttist til Þýskalands, þar sem hún m.a. sótti tíma í einum virtasta leiklistarskóla Hamborgar og fékk þar góð ummæli. Þar söng hún í hljómsveitinni Bastre Muba sem fékk góða dóma fyrir diskinn sinn “In einem fremden Land”.

Undir lok veru sinnar í Þýskalandi var Guðbjörg í samstarfi við The Thorntons, sem störfuðu undir merkjum Polygram í Þýskalandi, en með þeim söng hún m.a. “Heaven” sem Diana Warwick keypti af þeim bræðrum til flutnings eftir að hafa heyrt demo flutt af Guðbjörgu. Til gamans má geta þess að Guðbjörg tók þátt í nokkrum karaókíkeppnum víða í Þýskalandi og vann þær allar.

Mynd
Með Dúndurfréttum í Borgarleikhúsinu ásamt Andreu Gylfa og Regínu .

Þegar til Íslands var komið kölluðu Dúndurfréttir Guðbjörgu til samstarfs við uppsetningu á “Dark Side of the Moon” á Gauknum og síðar í Borgarleikhúsinu þar sem uppselt var í öll skiptin.

Á góðri stund með Evróvisjóngenginu 1999

Á sama tímabili söng hún inn á teiknimyndirnar “Prince of Egypt”, þar sem hún söng hlutverk móður Jósefs, “Pokahontas 2″ og með KK og Ellen í “Bugs Life”. Þegar hér var komið sögu þá var söngferill Guðbjargar kominn á fullan skrið hér á landi þar sem hún var einnig farin að syngja á Broadway í Primadonnu- og Abbasýningunum og sýningunni Laugardagskvöld á Gili með Ragga Bjarna og Álftagerðisbræðrum við góðar undirtektir gagnrýnenda á öllum sýningunum.

Á góðri stundu með Ragga Bjarna.

Guðbjörg hefur komið víða við á stuttum ferli því auk þess að hafa tekið þátt í því sem að framan er talið hefur Guðbjörg sungið í sjónvarpi, m.a. í 75 ára afmælisþætti RÚV, einsöng og dúett með Ragga Bjarna, að ógleymdri Evróvisjónkeppninni í Svíþjóð 1999. Ekki má gleyma að minnast á söng Guðbjargar í útvarps- og sjónvarpsauglýsingum, í brúðkaupum í mörgum af helstu kirkjum landsins og þátttöku hennar í hinni frábæru hljómsveit Leynifjelagið. Guðbjörg hefur undanfarið sótt einkatíma hjá Sigrúnu Þorgeirsdóttur, stjórnanda Kvennakórs Reykjavíkur og sungið með þeim Huldu og Rúnu Stefáns. sem Primadonnur á opinberum vetvangi með áherslu á ABBA-sýninguna margfrægu.