Brúðkaup
Sérhæfi mig í að syngja í brúðkaupum og eins og lagalistinn hér á vefnum segir til um hef ég komið víða við. Þó að listinn sé ágætur er hann ekki tæmandi og er væntanlegum brúðhjónum bent á að koma endilega með sínar hugmyndir um lög eða texta. Ég mæli eindregið með því að allt sé gert með góðum fyrirvara. Hægt er að nálgast tóndæmi hérna.
Hvort sem um er að ræða söng í sjálfri hjóna- vígslunni eða veislunni þá stendur væntanlegum brúðhjónum og gestum þeirra aðeins það besta til boða.
Ég legg mikla áhersla á virðulegan og vandaðan flutning.
Öllum fyrirspurnum svarað án skuldbindinga. Best er að senda mér tölvupóst eða hringja í GSM-númer mitt, 824 2898.
Á brúðkaupsdegi
“Á brúðkaupsdegi bið ég þess
að blessist allt á jörð.
Hjá þeim sem vinna heilög heit
að helgri sáttargjörð.”
“Ást eru tvær samhljóma sálir
og hjörtu sem slá í takt.”
höf. Oscar Wilde

